Kjúklingur með snilldarfyllingu

IMG_2589Þennan gómsæta kjúkling má undirbúa með dags fyrirvara  - Það er alltaf gott að eiga einn slíkan rétt í kollinum eða á bloggi. 

Magn ræðst af fjölda matargesta.  En ég miða við þetta magn af fyllingu við 5 kjúklingabringur (hafðu ekki áhyggjur ef þér finnst þú vera með of mikla fyllingu - hún klárast ALLTAF - hvort heldur sem meðlæti eða fylling - það er bara ekki hægt að gera of mikið af henni en hlutföllin eru eftirfarandi.....fyllingin stendur alveg ein og sér með hvað kjöti sem er - hef gert hana með svínakjöti og lami og alltaf er hún snilld

Fylling:

200 gr döðlur

1 krukka sólþurrkaðir tómatar

1 poki furuhnetur

2 msk ólífuolía

fullt af fersku rósmarín

Kastali eða Gullostur eða fyrir okkur sem búum ekki á Íslandinu góða bara einhver góður hvítmygluostur

2-3 hvítlauksgeirar

svartur pipar

 

Furuhnetur ristaðar. Döðlur, tómatar og rósmarínið skorið smátt og steikt á pönnu í olíu.  Hvítlaukur settur útá í restina -ekki á of heita pönnuna þá kemur svo beiskt bragð.  Osturinn settur í bitum útá heita pönnuna og látinn bráðna.  Piprað e smekk. 

 

Kjúklingabringur (magn eftir fjölda gesta)

Skorin er smá rauf í kjúklingabringuna og fyllingunni komið inn og ofaná.... tannstönglar til að festa saman.  Sett í ofnskúffu með álpappír ofaná eða lokað eldfast mót í 200 gr heitan ofn í ca 40 mín.  síðustu mínúturnar er gott að taka lokið af til að ,,gylla,, matinn.  Hvítlaukar helmingaðir og steiktir með í skúffunni eða í eldfasta mótinu og notaðir sem meðlæti - alltaf góðir svona bakaðir hvítlaukarWink

 

Sæt kartöflumús alveg snilld með

sætar kartöflur afhýddar og soðnað í smá vatni - hálf gufusoðnar

Maukaðar með töfrasprota í smá af eigin suðuvatni

Smjör og púðursykursett útí eftir smekk og kaloríuvild - mér finnst gott að hafa slatta af báðu veður þá flauelsmjúkt og enn ljúffengara - maður er nú ekki alltaf með smjör og púðursykur í matinn er það?? gera vel við sig af og til - getur ekki verið hættulegt.  Pipra vel með svörtum pipar.

Oftast hef ég með ferskar grænar baunir eða sykurbaunir soðnar í smá söltu vatni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Girnilegt!

Sigrún (IP-tala skráð) 4.12.2009 kl. 18:52

2 identicon

Hæ!

Það er líka ótrúlega gott að setja smá kanil, slatta af fersku engifer, hunang og pecanhnetur í sætkartöflumús.  Engifer og kanill gefa spennandi bragð.

Imba (IP-tala skráð) 27.1.2010 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband