Súkkulaðikókoskaka með ferskfíkjusírópi

 

Súkkulaðikókoskaka með ferskfíkjusírópi

 

Þessi snilldarkaka er ,,samsoðningur,,  úr tveimur kökum sem ég sá í matgæðingatímaritinu ALLT OM MAT sem ég kaupi reglulega hér í Sverige.  Hver biti er eins og konfektmoli - bakið og njótið

BOTNINN

4 dl kókos

1 dl hrásykur

½ dl ljós síróp

1 msk gæða kakó

1 msk hveiti

4 meðal stór egg

Ofninn hitaður í 175. Öllu blandað varlega saman og sett í smurt lausbotna form -eða setjið bökunarpappír í lausbotna form.  Bakað í um 20 mín eða þar til fallega gyllt.  Kælt. 

 

SÚKKULAÐIBRÁÐ

225 gr suðusúkkulaði

100 gr fíkjusúkkulaði (súkkulaði með fíkjufyllingu t.d. Marabou)

1 -1 ½ dl rjómi

1 msk hunang

1 msk smjör

Allt er þetta brætt saman og hellt yfir vel kældan botninn.  Kælið í um 5-6 tíma

 

FERSKFÍKJUSÍRÓP

6 ferskar fíkjur

1 dl hrásykur

1 dl vatn

Smá cayunpipar  (e smekk) gefur alltaf svo skemmtilegt sterkt eftirbragð

Fíkjurnar skornar í tvennt og kjötið tekið úr og setti í pott með sykrinum, vatninu og piparnum og soðið í 2-3 mín. 

SÍRÓPIР er borið fram með getur hver og einn fengið sér að vild Punkturinn yfir I er svo smá sletta af rjóma


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband