Færsluflokkur: Matur og drykkur
24.1.2010 | 21:16
Súkkulaðikókoskaka með ferskfíkjusírópi
Súkkulaðikókoskaka með ferskfíkjusírópi
Þessi snilldarkaka er ,,samsoðningur,, úr tveimur kökum sem ég sá í matgæðingatímaritinu ALLT OM MAT sem ég kaupi reglulega hér í Sverige. Hver biti er eins og konfektmoli - bakið og njótið
BOTNINN
4 dl kókos
1 dl hrásykur
½ dl ljós síróp
1 msk gæða kakó
1 msk hveiti
4 meðal stór egg
Ofninn hitaður í 175. Öllu blandað varlega saman og sett í smurt lausbotna form -eða setjið bökunarpappír í lausbotna form. Bakað í um 20 mín eða þar til fallega gyllt. Kælt.
SÚKKULAÐIBRÁÐ
225 gr suðusúkkulaði
100 gr fíkjusúkkulaði (súkkulaði með fíkjufyllingu t.d. Marabou)
1 -1 ½ dl rjómi
1 msk hunang
1 msk smjör
Allt er þetta brætt saman og hellt yfir vel kældan botninn. Kælið í um 5-6 tíma
FERSKFÍKJUSÍRÓP
6 ferskar fíkjur
1 dl hrásykur
1 dl vatn
Smá cayunpipar (e smekk) gefur alltaf svo skemmtilegt sterkt eftirbragð
Fíkjurnar skornar í tvennt og kjötið tekið úr og setti í pott með sykrinum, vatninu og piparnum og soðið í 2-3 mín.
SÍRÓPIÐ er borið fram með getur hver og einn fengið sér að vild Punkturinn yfir I er svo smá sletta af rjóma
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2009 | 18:09
Kjúklingur með snilldarfyllingu
Þennan gómsæta kjúkling má undirbúa með dags fyrirvara - Það er alltaf gott að eiga einn slíkan rétt í kollinum eða á bloggi.
Magn ræðst af fjölda matargesta. En ég miða við þetta magn af fyllingu við 5 kjúklingabringur (hafðu ekki áhyggjur ef þér finnst þú vera með of mikla fyllingu - hún klárast ALLTAF - hvort heldur sem meðlæti eða fylling - það er bara ekki hægt að gera of mikið af henni en hlutföllin eru eftirfarandi.....fyllingin stendur alveg ein og sér með hvað kjöti sem er - hef gert hana með svínakjöti og lami og alltaf er hún snilld
Fylling:
200 gr döðlur
1 krukka sólþurrkaðir tómatar
1 poki furuhnetur
2 msk ólífuolía
fullt af fersku rósmarín
Kastali eða Gullostur eða fyrir okkur sem búum ekki á Íslandinu góða bara einhver góður hvítmygluostur.
2-3 hvítlauksgeirar
svartur pipar
Furuhnetur ristaðar. Döðlur, tómatar og rósmarínið skorið smátt og steikt á pönnu í olíu. Hvítlaukur settur útá í restina -ekki á of heita pönnuna þá kemur svo beiskt bragð. Osturinn settur í bitum útá heita pönnuna og látinn bráðna. Piprað e smekk.
Kjúklingabringur (magn eftir fjölda gesta)
Skorin er smá rauf í kjúklingabringuna og fyllingunni komið inn og ofaná.... tannstönglar til að festa saman. Sett í ofnskúffu með álpappír ofaná eða lokað eldfast mót í 200 gr heitan ofn í ca 40 mín. síðustu mínúturnar er gott að taka lokið af til að ,,gylla,, matinn. Hvítlaukar helmingaðir og steiktir með í skúffunni eða í eldfasta mótinu og notaðir sem meðlæti - alltaf góðir svona bakaðir hvítlaukar
Sæt kartöflumús alveg snilld með
sætar kartöflur afhýddar og soðnað í smá vatni - hálf gufusoðnar
Maukaðar með töfrasprota í smá af eigin suðuvatni
Smjör og púðursykursett útí eftir smekk og kaloríuvild - mér finnst gott að hafa slatta af báðu veður þá flauelsmjúkt og enn ljúffengara - maður er nú ekki alltaf með smjör og púðursykur í matinn er það?? gera vel við sig af og til - getur ekki verið hættulegt. Pipra vel með svörtum pipar.
Oftast hef ég með ferskar grænar baunir eða sykurbaunir soðnar í smá söltu vatni.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.10.2009 | 15:44
Kínverskar vorrúllur
Fyllingin:
800 gr nautahakk
4 stórar gulrætur
4 nokkuð stórir sellerístilkar
1/2 hvítkálshöfuð
2-3 bollar rúsínur
stór biti engifer
3 hvítlauksrif
1 súputeningur
súrsæt sósa
garlic sósa
fiskisósa
svartur malaður pipar
Smá sykur ;)
Gulræturnar og engiferið rifið niður. Sellerí og hvítkál saxað niður í mjóa strimla. Öllu skellt í stóran pott og steikt. Smakkað til með sósum.
Vorrúllupappírinn sem fyllingin er sett inní fæst í Nings Sælkerabúðinni og í verslunum innflytjenda víða um heim (hehe alla vega á Íslandi og í Svíþjóð:lol:)
Fyllingin sett inní á neðri brún pappírsins og vafið inn og djúpsteikt við háan hita. Leiðbeiningar fylgja yfirleitt pappírnum ;)
Borið fram með dipping sósu - súrsætri eða öðrum sætum austurlenskum sósum. Brakandi ferskt og gott. Verður eiginlega að borða strax.
Ummæli gesta - Váááá þetta er ekkert smá hrikalega gott
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)